Um Kahoot! Kahoot! er ókeypis app eða smáforrit sem virkar í öllum tölvum, spjaldtölvum og snjalltækjum. Nemendur fara inn á vefsetrið kahoot.it og slá þar inn pin-númer ásamt því að skrá inn nafnið sitt. Ef nemendur eru með spjaldtölvu eða snjallsíma sækja þeir smáforritið Kahoot! í App Store.
Til kennarans Kennarar fara inná vefsetrið getkahoot.com. Þar stofna þeir aðgang sem kostar ekkert og geta þá náð í verkefni úr Sögueyjunni 1900–2010 með því að smella á Find Kahoots efst á stikunni og leita að Sögueyjan 3. hefti- eftir Ara Jóhannsson. Þar er að finna spurningar úr öllum köflum bókarinnar. Kennarar geta líka sótt þessi verkefni í sitt Kahoot! Kennarinn varpar efninu upp fyrir nemendur og þeir verða að lesa spurningarnar af tjaldinu eða snjalltöflunni og svara síðan í spjaldtölvunni eða snjallsímanum sínum. Kennarinn byrjar keppnina þegar nemendur eru allir búnir að skrá sig inn.
Spurningakeppnin Kahoot! býður í raun uppá þrennt, spurningakeppni, spurningakönnun og umræðuþráð. Í þessu verkefni er um spurningakeppni að ræða, eina keppni fyrir hvern kafla bókarinnar. Spurningarnar eru mismargar eftir köflum. Kennarinn ræsir keppnina með því að fara á vefsetrið getkahoot.com. Hann skráir sig inn og sækir kaflann sem spyrja á úr. Hann smellir síðan á Play-hnappinn. Þá velur hann Classic. Þá birtist Game pin-númer sem að nemendur slá inn til að komast inní keppnina. Þegar allir hafa skráð sig inn ræsir kennarinn keppnina með því að smella á Start.
Hver spurning er sýnileg í 30 sekúndur. Kennarinn stjórnar því hvenær næsta spurning birtist og getur því rætt einstakar spurningar við nemendur. Sums staðar prýða myndir úr bókinni spurningar. Hver keppni tekur um 5-10 mínútur að meðaltali.
Í kennslu hentar vel að enda hvern kafla á því að fara í Kahoot! með nemendum.