Stuttmyndagerð um valinn efnisþátt Nemendur vinna 3–4 saman að stuttmynd í iMovie um valið efni tengt kennslubókinni Sögueyjunni 1900–2010, eitt af eftirfarandi efnum:
Ísland hernumið
Ísland iðnvæðist
Kvenréttindi
Seinni heimstyrjöldin
Lýðveldisstofnun
Þorskastríðið
Velja má önnur viðfangsefni í samráði við kennara. Verkefninu, áherslum, tilhögun og námsmati er lýst nánar í eftirfarandi ritvinnsluskjölum sem kennari getur breytt að vild:
Kennsluhættir Eins og ráða má af ofangreindum skjölum er gert ráð fyrir að nemendur temji sér gagnrýna hugsun, ígrundun, sjálfstæðar skoðanir og skapandi vinnubrögð. Engu að síður er mikilvægt er að kennari setji nemendum skýr viðmið svo þeir viti til hver er ætlast af þeim. Góð regla er að setja hópunum gátlista eða matstöflu sem þeir geta stuðst við. Einnig er gott að hver hópur skrái hjá sér ábyrgð eða hlutverk og jafnvel frammistöðu hvers og eins í hópnum.
Efni til stuðnings Á vefsetri Menntamálastofnunar má skoða bók þar sem rætt er um kvikmyndagerð og aðra hliðstæða efnisgerð nemenda í skólastarfi. Hún er eftir Sigrúnu Cortes, Björgvin Ívar Guðbrandsson, Margréti Hugadóttur og Torfa Hjartarson og heitir Skapandi skóli: Handbók um fjölbreytta kennsluhætti og stafræna miðlun. Rafbókarútgáfan er á slóðinni http://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/skapandi/.
Á vefsetri Menntamálastofnunar er líka að finna leiðbeiningar um hljóðvinnslu og kvikmyndagerð eftir Björgvin Ívar Guðbrandsson. Sá efnisvefur heitir Margmiðlun – Stafræn miðlun og er á slóðinni https://mms.is/namsefni/margmidlun-stafraen-midlun.