Um Quizlet Quizlet er frítt app eða forrit sem býður uppá margs konar æfingar og keppni. Það virkar í öllum tölvum, spjaldtölvum og snjalltækjum. Ef nemendur eru með spjaldtölvu eða snjallsíma sækja þeir smáforritið í App Store.
Kennarar stofna aðgang að Quizlet á slóðinni https://quizlet.com/. Þeir geta líka sótt smáforritið í spjaldtölvuna sína í App Store þar sem það birtist undir yfirskriftinni Quizlet - Create Flashcards & Learn Languages App.
Kennarar geta stofnað bekki eða hópa í kerfinu og úthlutað nemendum verkefnum. Þá má kaupa aðgang að fleiri möguleikum, til dæmis ef kennari vill fylgjast með framgangi nemenda og útbúa verkefni með hljóðum.
Verkefnin Verkefnin sem hér eru lögð fram ganga út á að para saman orð og setningar sem eiga saman. Þetta eru því nokkurs konar samstæðuspil og eru í Quizlet kölluð MATCH. Nemendur fara inn í smáforritið og leita uppi Sögueyjan 3. hefti eftir arijohannsson. Þar velja þeir þá kafla sem kennarinn biður þá að sækja. Þeir velja svo MATCH til að para saman orð og setningar. Fyrsta verkefnið er úr köflum 1-3. Annað verkefnið er úr köflum 4-6 og þriðja verkefnið úr köflum 7-10. Upplagt er að fara í fyrsta verkefnið þegar kafla 3 er lokið með nemendum, næsta verkefni við lok 6. kafla og þriðja verkefnið við lok 10. kafla.
Kennarinn getur sett þetta upp sem keppni innan bekks eða bekkja. Einnig er hægt að keppa við klukkuna og láta þann sem fyrstur svarar vinna.