Þessi efnisvefur var útbúinn sérstaklega til að setja á einn stað stafrænt námsefni Ara Jóhannssonar og verkefni um efnisgerð tengd Sögueyjunni 1900–2010 eftir Leif Reynisson. Verkefna- og vefgerðin var lítill hluti af lokaverkefni Ara til M.Ed.-gráðu vorið 2017. Burðarhlutinn var greinargerð sem vefnum fylgdi en hana er hægt að skoða í Skemmu á vefslóðinni http://skemman.is. Ekki er mælt með að kennarar gefi nemendum upp hvar þennan efnisvef eða greinargerðina er að finna. : )
Myndir birtar hér á síðum efnisvefsins eru flestar teknar úr bókinni Sögueyjan 1900–2010 eða af vefsetrum þeirra forrita sem hér eru kynnt. Þórey Mjallhvít Ómarsdóttir myndskreytti bókina og veitti leyfi fyrir birtingu á myndum úr henni á þessum vef.