Um Socrative Socrative er frítt app eða smáforrit sem upplagt er að nota til að prófa nemendur úr námsefni. Nemendur fara á slóðina https://socrative.com/ til að komast í prófið. Ef þeir eru með spjaldtölvu eða snjallsíma sækja þeir smáforritið Socrative í App Store. Kennarar sækja hins vegar smáforritið Socrative - teacher í App Store. Þeir stofna aðgang að kerfinu í Socrative og skrá sig þar inn.
Prófið Útbúið var úr Sögueyjunni 1900–2010 próf sem kennarar geta nýtt sér. Prófið er í smáforritinu Socrative. Prófið er 20 spurningar og prófað er úr öllum köflum bókarinnar. Hæst er hægt að fá 10 svo hver spurning gildir hálfan í einkunn eða hálft stig.
Til að sækja prófið þarf að gera eftirfarandi:
Skrá sig inn í Socrative.
Velja Quizzes. Þar til hægri er svo smellt á hnappinn Add quiz og valið Import.
Slá inn kóðann SOC-27438761.
Til að ræsa prófið gerið þið eftirfarandi:
Veljið Launch - Quiz.
Hakið við Sögueyjan 3 próf og veljið Next.
Veljið Teacher Paced í lið 2.
Dragið Require Names til hægri.
Smellið á Start.
Kennarinn varpar þá upp á tjald eða snjalltöflu prófinu í Socrative. Nemendur lesa spurningarnar af tjaldi eða töflu en svara þeim í spjaldtölvunni eða snjallsímanum sínum.